Innlent

Katrín tekur for­ystuna á ný og Halla T í sókn

Heimir Már Pétursson skrifar
Katrín, Halla Hrund og Halla Tómasdóttir fara yfir málin fyrir kappræður á Stöð 2.
Katrín, Halla Hrund og Halla Tómasdóttir fara yfir málin fyrir kappræður á Stöð 2. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og tæplega þrefaldar fylgi sitt.

Það er óhætt að segja að fylgi forsetaframbjóðenda sé á mikilli hreyfingu. Katrín Jakobsdóttir mælist nú með mesta fylgið eða 26,1 prósent sem er lítil breyting frá síðustu könnun Maskínu fyrir rúmri viku.

Halla Hrund Logadóttir tapar hins vegar mestu fylgi milli kannana eða rétt tæplega átta prósentustigum og mælist nú með 21,8 prósent. Ekki er þó marktækur munur á fylgi hennar og Katrínar.

Það er hins vegar marktækur munur á fylgi Höllu Hrundar og Baldurs Þórhallssonar. Hann missir tæp tvö prósentustig milli kannana og er nú með 16,2 prósent en Jón Gnarr er nú með 12,6 prósent bætir við sig 1,4 prósentustigum.

Tólf manns bjóða sig fram til forseta Íslands.vísir

Það er hins vegar Halla Tómasdóttir sem er hástökkvarinn milli kannana Maskínu. Hún mældist með 5,4 prósent hjá Maskínu hinn 8. maí en er nú með 14,9 prósent, tæplega þrefaldar fylgi sitt. Ekki er marktækur munur á fylgi Höllu Tómasdóttur, Baldurs og Jóns Gnarr.

Arnar þór Jónsson bætir við sig prósentustigi milli kannana og mælist nú með 5,2 prósent. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er með 1,1 prósent en aðrir frambjóðendur eru með innan við eitt prósent og jafnvel innan við hálft prósent.

Hér sést vel hvernig fylgi einstakra forsetaframbjóðenda hefur breyst í könnunum Maskínu allt frá 8. apríl til dagsins í dag.Grafík/Hjalti

Á meðfylgjandi mynd sjáum við þróunina á fylgi sex efstu frambjóðenda samkvæmt könnunum Maskínu allt frá 8. apríl til dagsins í dag. Í fyrstu tveimur könnununum var Katrín með forystuna og Baldur fylgdi henni fast á eftir. 

Hinn 26. apríl skaust Halla Hrund hins vegar upp fyrir þau bæði og hélt forystunni allt þar til í könnun Maskínu í dag. Þótt fylgi Katrínar hafi lítið breyst frá 26. apríl þá mælst hún nú með mesta fylgið vegna fylgistaps Höllu Hrundar. Svo virðist sem fylgið hafa aðallega farið af henni til nöfnu hennar Höllu Tómasdóttur og að hluta frá Baldri,eins og sést vel á meðfylgjandi mynd.


Tengdar fréttir

Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld

Miklar breytingar eru á fylgi forsetaframbjóðenda samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna sem greint verður frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Viðbragða verður leitað hjá sex efstu forsetaframbjóðendum samkvæmt könnunum sem mæta í kappræður í beinni útsendingu opinni dagskrá strax að loknum kvöldfréttum.

Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn

Ásdís Rán Gunnarsdóttir forsetaframbjóðandi og athafnakona hyggst bjóða öðrum frambjóðendum og fjölskyldum þeirra til galakvölds næstkomandi laugardagskvöld. Ásdís segir tilganginn vera að hrista saman hópinn.

Halla þótti standa sig best

Flestir þeirra sem fylgdust með kappræðum á RÚV vegna forsetakosninganna föstudagskvöldið 3. maí töldu Höllu Tómasdóttur hafa staðið sig best. Skammt á hæla Höllu komu Baldur Þórhallsson og Katrín Jakobsdóttir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×